Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. september 2022 15:17
Elvar Geir Magnússon
Segir ekki fót fyrir Marcelo sögunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Simon Stone, fréttamaður BBC, kannaði hvort sá orðrómur að Leicester væri að semja við Brasilíumanninn Marcelo væri sannur.

„Það yrðu ótrúleg tíðindi en mér er sagt að enginn fótur sé fyrir þessu. Það er leiðinlegt. Það yrði stórt að fá hann í úrvalsdeildina, þó hann sé 34 ára," segir Stone.

Marcelo er 34 ára vinstri bakvörður sem vann Meistaradeildina fimm sinnum sem leikmaður Real og spænsku deildina sex sinnum.

Hann yfirgaf Real Madrid í sumar og er því félagslaus.
Athugasemdir
banner