Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 01. nóvember 2020 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir dagsins: Gylfi Þór flottur - Andre Gomes þristaður
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson bar fyrirliðaband Everton er liðið tapaði fyrir Newcastle í enska boltanum í dag.

Everton var án lykilmanna vegna meiðsla þar sem James Rodriguez, Richarlison, Lucas Digne og Seamus Coleman eru á meiðslalistanum auk Mason Holgate og Jean-Philippe Gbamin.

Newcastle stóð uppi sem sigurvegari í dag og gerði Callum Wilson bæði mörkin í 2-1 sigri. Wilson var valinn maður leiksins af Sky Sports og var hann eini leikmaður vallarins sem fékk 8 í einkunn.

Allir leikmenn Newcastle fengu 7 í einkunn fyrir sinn þátt í góðum liðssigri. Gylfi Þór var meðal bestu leikmanna Everton með 7 í einkunn. Portúgalski miðjumaðurinn Andre Gomes þótti arfaslakur, hann var versti maður vallarins og fær aðeins 3 punkta frá Sky.

Newcastle: Darlow (7), Schar (7), Lacelles (7), Fernandez (7), Murphy (7), Lewis (7), Hendrick (7), S.Longstaff (7), Almiron (7), Saint-Maximin (7), Wilson (8)
Varamaður: Fraser (7)

Everton: Olsen (7), Kenny (5), Mina (5), Keane (6), Nkounkou (5), Delph (5), Doucoure (6), Allan (7), Gomes (3), Sigurðsson (7), Calvert-Lewin (7)
Varamenn: Bernard (6), Tosun (5)



Aston Villa tapaði þá gegn Southampton í gríðarlega fjörugum leik á heimavelli þar sem James Ward-Prowse var besti maður vallarins.

Ward-Prowse lagði fyrsta mark leiksins upp og skoraði tvö til viðbótar í 3-4 sigri Southampton.

Jack Grealish og varamaðurinn Trezeguet voru bestu leikmenn heimamanna í Villa með 8 í einkunn.

Aston Villa: Martinez (6), Cash (6), Konsa (6), Mings (7), Targett (7), McGinn (6), Luiz (6), Grealish (8), Barkley (7), Watkins (6), Traore (6)
Varamenn: Trezeguet (8), El Mohamady (6)

Southampton: McCarthy (7), Walker-Peters (7), Vestergaard (7), Bednarek (6), Bertrand (6), Armstrong (6), Romeu (6), Ward-Prowse (9), Walcott (6), Ings (7), Adams (7)
Varamenn: Stephens (6), Long (6), Diallo (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner