Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. mars 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ráku hóp af Japönum af vellinum í Leipzig - Hræddir við kóróna veiruna
Mynd: Getty Images
RB Leipzig mætti Bayer Leverkusen í þýsku toppbaráttunni um helgina og lauk leiknum með 1-1 jafntefli.

Hópur af rúmlega tuttugu Japönum var á leiknum. Gæslumenn Leipzig komu auga á Japanina og ákváðu að henda þeim út af hræðslu við kóróna veiruna.

Þýski miðillinn Frankfurter Rundschau greinir frá þessu. RB Leipzig hefur beðist afsökunar vegna mistakanna og lofar að bæta þetta upp.

Japanarnir vildu aðeins gera sér glaðan dag og horfa á fótboltaleik og keyptu miða á hlutlausa svæðið í stúkunni.
Athugasemdir
banner
banner