Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Davíð Smári: Menn labba ekki nægilega gíraðir inn í seinni hálfleikinn
Heimir: FH liðið er besta liðið í deildinni í að koma til baka
Andri Rúnar: Eftir jöfnunarmarkið vöknum við ekki aftur til lífsins
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
   fim 03. júní 2021 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hemmi hress: Gaman að geta kannski hjálpað þeim að taka næsta skref
Icelandair
Hemmi á æfingunni í dag
Hemmi á æfingunni í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég fíla mig frábærlega hér, þetta er geggjað," sagði Hermann Hreiðarsson fyrir U21 landsliðsæfingu í dag. Hemmi var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins í maí og mun starfa með Davíð Snorra Jónassyni sem er aðalþjálfari.

„Það er miklu minni tími, færri leikir. Þetta er svart á hvítu miðað við að þjálfa Þrótt Vogum. Gríðarlega spennandi og skemmtilegt verkefni framundan," sagði Hemmi sem er þjálfari Þróttar.

Yngistu upp við að vera með þessum ungu strákum?

„Já, maður er nú alveg á fínum stað þar svo sem." sagði Hemmi og hló. „Jú, maður hefur gaman af því að vinna með öllum aldri og hvað þá þessum aldri að geta kannski hjálpað þeim að taka næsta skref."

Hvernig er að vinna með Davíð?

„Það er frábært, það er þvílíkur fagmaður hér á ferð. Ég er spenntur að vinna með honum, mér finnst hann með skemmtilegar hugmyndir varðandi framhaldið."

Þú ert aftur kominn í KSÍ klæðnað, er gott að vera í honum?

„Já, það er frábært að vera kominn í þetta. Þetta eru aðeins skemmtilegri græjur að vera í Puma en í Errea," sagði Hemmi og hló.

Viðtalið í heild má sjá hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner