Það var glatt á hjalla í setti hjá ITV þegar England vann Kólumbíu í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum HM.
Gary Neville, Ian Wright og Lee Dixon voru sérfræðingar ITV í kringum leikinn.
Gary Neville, Ian Wright og Lee Dixon voru sérfræðingar ITV í kringum leikinn.
Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni og þar hafði England betur. England skoraði úr fjórum af sínum spyrnum á meðan Kólumbía skoraði aðeins úr þremur.
Jordan Pickford varði síðustu spyrnu Kólumbíu frá Carlos Bacca og Eric Dier skoraði úr síðustu spyrnu Englands.
Þegar sigurinn var í höfn trylltust sérfræðingarnir úr gleði eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan. Fylgist sérstaklega vel með fyrrum Arsenal framherjanum, Ian Wright.
Sjón er svo sannarlega sögu ríkari!
Happy? pic.twitter.com/JxQPLpIevj
— Lee Dixon (@LeeDixon2) July 3, 2018
Athugasemdir