Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 03. október 2021 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Elías hélt hreinu í fimmta deildarleiknum í röð
Mynd: Getty Images
Elías Rafn Ólafsson hefur farið á kostum í marki Midtjylland á þessari leiktíð.

Hann var valinn besti leikmaður september mánaðar í dönsku úrvalsdeildinni og varði víti í vikunni í Evrópudeildinni.

Hann heldur hinum reynda Jonas Lössl út úr liðinu en Midtjylland vann Íslendingaslag gegn AGF í dag með fjórum mörkum gegn engu.

Þetta var fimmti leikur Elíasar í deildinni og í fimmta sinn sem hann heldur hreinu. Mikael Anderson var í byrjunarliði AGF en Jón Dagur Þorsteinsson tók út leikbann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner