Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 04. september 2022 17:01
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Saka jafnaði en Rashford kom Man Utd aftur yfir
Marcus Rashford kom United aftur yfir
Marcus Rashford kom United aftur yfir
Mynd: EPA
Manchester United er að vinna Arsenal, 2-1, á Old Trafford í þessum skrifuðu orðum.

United náði forystunni í fyrri hálfleiknum með marki frá Antony eftir stoðsendingu Marcus Rashford.

Arsenal var þá að spila mun betur og var það mark gegn gangi leiksins en gestirnir mættu ákveðnir inn í síðari hálfleikinn og hótuðu nokkrum sinnum marki áður en Saka jafnaði metin.

Nokkrum mínútum síðar komst United aftur yfir. Bruno Fernandes átti stórkostlega sendingu inn fyrir vörn Arsenal og þar var Rashford einn gegn Aaron Ramsdale og setti hann örugglega í vinstra hornið.

Hægt er að sjá bæði mörkin hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Saka
Sjáðu markið hjá Rashford
Athugasemdir
banner