Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 04. október 2020 13:55
Ívan Guðjón Baldursson
Alisson ekki með í kvöld vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Alisson Becker, brasilískur markvörður Liverpool, verður ekki með liðinu gegn Aston Villa í kvöld. Alisson varð fyrir smávægilegum meiðslum á æfingu og ætti að jafna sig á næstu dögum.

Liverpool verður einnig án Sadio Mane og Thiago Alcantara sem greindust með kórónuveiruna í vikunni.

Auk þeirra eru Joel Matip og Alex Oxlade-Chamberlain meiddir. Jordan Henderson er tæpur.

Adrian mun því byrja á milli stanga Liverpool sem freistar þess að vinna fjórða deildarleikinn í röð til að jafna nágranna sína í Everton á toppi úrvalsdeildarinnar.

Trent Alexander-Arnold og Fabinho voru taldir vera tæpir en fregnir frá Englandi herma að þeir séu klárir í slaginn og líklegir til að vera í byrjunarliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner