Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. janúar 2020 18:14
Ívan Guðjón Baldursson
Balotelli skoraði fyrsta markið annan áratuginn í röð
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli skoraði fyrsta mark leiksins er Brescia tapaði 1-2 fyrir Lazio í ítalska boltanum í dag.

Balotelli skoraði þar með fyrsta mark áratugarins í Serie A sem er merkilegt fyrir þær sakir að hann gerði einnig fyrsta mark síðasta áratugar.

Þá skoraði hann eina mark leiksins í 1-0 sigri Inter gegn Chievo 6. janúar 2010.

Balotelli gekk í raðir nýliða Brescia síðasta sumar og er búinn að gera fimm mörk í þrettán deildarleikjum frá komu sinni, þar af tvö í síðustu tveimur leikjum.

Balotelli er 29 ára gamall og hefur enn nokkur ár til að sanna gæði sín og komast aftur í ítalska landsliðshópinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner