Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. mars 2023 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gat ekki haldið aftur af sér eftir gríðarlega dramatískt sigurmark Arsenal
Ian Wright.
Ian Wright.
Mynd: Getty Images
Arsenal goðsögnin Ian Wright missti sig gjörsamlega úr gleði þegar hans gamla félag vann dramatískan sigur gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Arsenal lenti í miklum vandræðum í leiknum í gær, en staðan var 0-2 fyrir Bournemouth í byrjun seinni hálfleiks.

Lundúnafélagið kom sér aftur inn í leikinn með mörkum frá Thomas Partey og Ben White áður en varamaðurinn Reiss Nelson gerði sigurmarkið á síðustu sekúndum leiksins.

Sigurmarkið kom nánast úr síðustu spyrnu leiksins og var gleðin mikil hjá Wright eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan.

Arsenal er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en það er ansi mikil meistaralykt í kringum Emirates-völlinn þessa stundina.


Athugasemdir
banner
banner
banner