Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 05. maí 2022 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Auðvitað situr það í okkur en við erum tilbúnar í þetta sumar"
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Þessi spá kannski kemur okkur ekkert endilega á óvart miðað við gengið á undirbúningtímabilinu. Maður þarf að sanna þessa spá líka," sagði Sigríður Lára Garðarsdóttir, leikmaður FH, við Fótbolta.net á dögunum.

Hún var til viðtals þar sem Lengjudeild kvenna er að fara af stað og er FH spáð toppsætinu í deildinni.

„Mér líst mjög vel á sumarið og ég er hrikalega spennt. Ég held að við séum búnar að bæta okkur frá því síðasta sumar og erum klárlega reynslunni ríkari. Hópurinn er bara svipaður en auðvitað missum við lykilleikmenn í barneignir og þær reyndust okkur ótrúlega vel. En það kemur maður í manns stað."

„Já, það er klárt að við ætlum okkur upp og ég held að allir viti að það sé stefnan. Það er markmið númer eitt, tvö og þrjú."


Sísí sagði að stefnan í fyrra hefði verið að fara upp um deild og því hafi niðurstaða tímabilsins verið vonbrigði. „Við vorum búnar að vera í fyrsta sæti hluta af sumrinu og auðvitað situr það í okkur en við erum tilbúnar í þetta sumar."

Hvernig er staðan á þér sjálfri?

„Staðan er mjög góð, mér líður hrikalega vel í FH og er full tilhlökkunar að spila með liðinu í sumar," sagði Sísí.

FH spilar sinn fyrsta leik í Lengjudeild kvenna þetta sumarið gegn Haukum í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner