Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. maí 2022 10:30
Elvar Geir Magnússon
Stórkostleg innkoma hjá nítján ára Camavinga
Camavinga fagnar með liðsfélögum sínum.
Camavinga fagnar með liðsfélögum sínum.
Mynd: Getty Images
„Hann kom inn með nákvæmlega það sem liðið þurfti, hann kom inn með karakter á erfiðum tímapunkti. Hann er orðinn frábær leikmaður nítján ára gamall. Hann þarf að spila meira," stendur í umsókn Marca um frammistöðu Eduardo Camavinga í gær.

Real Madrid kom sér í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með rosalegri endurkomu gegn Manchester City í gær.

Varamennirnir gerðu gæfumuninn. Rodrygo kom inn á 68. mínútu og skoraði tvívegis í lokin sem gerði það að verkum að leikurinn var framlengdur. Þar skoraði Karim Benzema sigurmarkið af vítapunktinum.

En innkoma Camavinga var einnig stórkostleg. Frakkinn ungi breytti leiknum þegar hann kom inn á 75. mínútu; sýndi drifkraft, ákefð og hugrekki að bera boltann upp völlinn.

Hinn nítján ára gamli Camavinga kom til Real Madrid frá Rennes síðasta sumar. Eins og vill vera hjá ungum leikmönnum þá hefur frammistaða hans verið misjöfn á tímabilinu en hann hefur sýnt það að undanförnu að hann er að finna sig betur, læra og taka framförum.

Á stærstu augnablikunum á stóra sviðinu hefur hann sýnt hvers hann er megnugur.



Athugasemdir
banner
banner