Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. september 2021 08:30
Aksentije Milisic
Van Gaal sýnir tilburði í viðtali: Bakverðir eins og stýri
Mynd: Getty Images
Louis Van Gaal, landsliðsþjálfari Hollands, vakti athygli í viðtali eftir leik Hollands og Svartfjallalands í gær.

Holland vann öruggan 4-0 sigur en liðið er í harðri baráttu í G-riðlinum. Memphis Depay, leikmaður Barcelona, gerði tvennu fyrir Holland í leiknum.

Van Gaal er aftur orðinn þjálfari Hollands en hann hefur oftar en ekki vakið mikla athygli í viðtölum á blaðamannafundum. Enska pressan hafði mjög gaman að honum á tíma hans hjá Manchester United.

„Bakverðir eiga að hegða sér eins og stýri. Sjáðu. Ef Dumfries fer upp, þá bíður Malacia til baka. Ef Malacia fer fram, þá bíður Dumfries," sagði Van Gaal við fréttamanninn og sýndi tilburði eins og hann héldi á stýri.

Myndir af þessum skemmtilegu töktum hjá Hollendingnum má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner