Joshua Dasilva, leikmaður Brentford, fékk að líta rauða spjaldið í tapi liðsins gegn Tottenham í enska deildabikarnum í gær.
Dasilva fór of hátt með fótinn í tæklingu á Pierre-Emile Höjbjerg með þeim afleiðingum að Höjberg fékk skurð á löppina sem blæddi úr. Tæklingin var hörð og legghlíf Höjberg fékk að finna fyrir því.
Dasilva fór of hátt með fótinn í tæklingu á Pierre-Emile Höjbjerg með þeim afleiðingum að Höjberg fékk skurð á löppina sem blæddi úr. Tæklingin var hörð og legghlíf Höjberg fékk að finna fyrir því.
„Allir sem þekkja mig vita að þetta var ekki viljandi..mun læra af þessu," sagði Dasilva á Twitter eftir leik.
Höjberg svaraði Dasilva og sagðist fyrirgefa honum. „Auðvitað meintir þú þetta ekki. Ekki hafa áhyggjur. Ég er víkingur og er í lagi. En..þú skuldar mér nýja legghlíf😇."
Höjberg óskaði síðan Dasilva góðs gengis í framtíðinni eins og sjá má hér að neðan.
Of course you didn’t mean it. So don’t worry. I’m a viking and I am fine. But... You owe me a new shin pad 😇.
— Pierre-Emile Højbjerg (@hojbjerg23) January 6, 2021
You have a great future ahead @joshdasilva_ .
Be strong & keep working hard.
Best of luck to you and your team.
Big hug,
Pierre-Emile Højbjerg. https://t.co/D6fL12OyQx
Athugasemdir