Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 07. júní 2019 21:04
Ívan Guðjón Baldursson
HM kvenna: Frakkar burstuðu Suður-Kóreu
Mynd: Getty Images
Frakkland 4 - 0 Suður-Kórea
1-0 Eugenie Le Sommer ('9)
2-0 Wendie Renard ('35)
3-0 Wendie Renard ('45)
4-0 Amandine Henry ('85)

Franska kvennalandsliðið valtaði yfir það Suður-kóreska í opnunarleik HM kvenna í Frakklandi.

Frakkar stjórnuðu leiknum frá upphafi til enda og var staðan 3-0 eftir fyrri hálfleik.

Markavélin Eugenie Le Sommer gerði fyrsta mark leiksins og bætti varnarmaðurinn öflugi Wendie Renard tveimur skallamörkum við fyrir leikhlé. Bæði komu eftir hornspyrnu.

Amandine Henry skoraði síðasta mark leiksins á 85. mínútu. Það var glæsilegt þar sem hún byrjaði sóknina fyrir aftan miðju og endaði hana með glæsilegu skoti fyrir utan teig.
Athugasemdir
banner
banner