Haukur Heiðar Hauksson var á ferðinni fyrir AIK í dag þegar liðið kíkti í heimsókn til Trelleborg.
Ekkert var skorað í fyrri hálfleik en það var annað upp á teningnum í þeim síðari.
AIK komst tveimur mörkum yfir áður en Trelleborg minnkaði muninn. Tarik Elyounoussi skoraði sitt annað mark á 75. mínútu og gerði út um leikinn. Liðið bætti svo við einu marki í uppbótartíma.
Haukur Heiðar spilaði allan leikinn fyrir AIK sem er í efsta sæti deildarinnar, einu stigi á undan Hammarby sem á þó tvo leiki til góða.
Óttar Magnús Karlsson spilaði síðustu mínúturnar fyrir Trelleborg.
Athugasemdir