Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, verður mögulega fjarri góðu gamni þegar Ísland mætir Sviss í fyrsta leik í Þjóðadeildinni þann 8. september næstkomandi.
Aron Einar og Kristbjörg Jónasdóttir, eiginkona hans, eiga von á sínu öðru barni í byrjun september en þá kemur strákur í heiminn.
Árið 2015 var Aron staddur í landsliðsverkefni í Kasakstan þegar Óliver, sonur þeirra hjóna, kom í heiminn. Hann ætlar ekki að missa aftur af fæðingu í september.
„Það verður að koma í ljós hvort ég nái fyrsta leik út af barneign hjá okkur," sagði Aron í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
„Ég ætla ekki að missa af því eins og síðast. Það var tekið í gegnum Facetime síðast. Maður verður að vera viðstaddur í þetta skipti."
Ísland mætir Sviss á útivelli 8. september í Þjóðadeildinni en þremur dögum síðar koma Belgar í heimsókn á Laugardalsvöll.
Athugasemdir