Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 07. september 2021 21:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
4. deild: KH upp í 3. deild - Mæta Kormáki/Hvöt í úrslitum
Úr leik Kríu og KH í fyrra.
Úr leik Kríu og KH í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Vængir Júpíters 0-2 KH
0-1 Ervist Pali ('9)
0-2 Sturla Ármannsson ('59)

KH leikur í 3. deild á næstu leiktíð eftir að liðið vann 2-0 sigur á Vængjum Júpíters í undanúrslitum úrslitakeppni 4. deildar í kvöld.

Ervist Pali kom KH yfir strax á 9. mínútu en þannig var staðan allt fram á 59. mínútu. Sturla Ármannsson kom þá KH í tveggja marka forystu og þar við sat.

Kormákur/Hvöt tryggði sér sæti í 3. deild fyrr í dag með sigri á Hamri.

KH og Kormákur/Hvöt mætast í úrslitaleik 4. deildar á laugardaginn kl 14 en á sama tíma leika Vængir Júpíters og Hamar um þriðja sætið.


Athugasemdir
banner
banner