Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fös 08. maí 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pétur Rúnar spáir í 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
Pétur Rúnar Birgisson.
Pétur Rúnar Birgisson.
Mynd: Mummi Lú
Liverpool mætir Chelsea í hádegisleiknum á morgun.
Liverpool mætir Chelsea í hádegisleiknum á morgun.
Mynd: EPA
Pétur spáir City sigri og marki frá Doku.
Pétur spáir City sigri og marki frá Doku.
Mynd: EPA
Fáum við þrennu frá Gyökeres?
Fáum við þrennu frá Gyökeres?
Mynd: EPA
Við erum á lokametrunum í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið. Arsenal er í kjörstöðu eftir að Manchester City tapaði stigum gegn Everton síðastliðinn mánudag.

Við fengum Pétur Rúnar Birgisson, körfuboltamann úr Tindastóli, til að leggjast yfir leikina. Pétur Rúnar er á leið í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn þar sem Stólarnir mæta Grindavík.

Liverpool 3 - 1 Chelsea (11:30 á morgun)
Bæði lið ekki uppá sitt besta þetta tímabilið en Chelsea bara verri og þetta verður auðvelt fyrir Liverpool.

Brighton 4 - 0 Wolves (14:00 á morgun)
Brighton einfaldlega mikið betra lið og Wolves búnir.

Fulham 1 - 2 Bournemouth (14:00 á morgun)
Bournemouth á mikilli siglingu og sú sigling stoppar ekki gegn Fulham. Ætli Kroupi setji ekki eitt?

Sunderland 0 - 2 Man Utd (14:00 á morgun)
Sunderland sáttir með að vera búnir að tryggja sér veru meðal þeirra bestu á næsta tímabili og United halda áfram að leyfa manninum sem ætlar að klippa sig ef þeir vinna 5 í röð að dreyma.

Man City 3 - 1 Brentford (16:30 á morgun)
City tapa því miður ekki stigum í tveimur leikjum i röð og Doku slysast til að skora í öðrum leiknum í röð.

Burnley 1 - 2 Aston Villa (13:00 á sunnudag)
Villa með alla áherslu á að klára Evrópu en ná samt að landa sigri gegn lélegu liði Burnley. Sancho hendir í sýningu.

Crystal Palace 0 - 1 Everton (13:00 á sunnudag)
Verður ansi lokað þennan sunnudaginn í London en Tarkowski nær að troða honum yfir línuna.

Nottingham Forest 2 - 1 Newcastle (13:00 á sunnudag)
Forest klára þennan, bjarga sér frá falli og setja enn meiri hita á Eddie Howe.

West Ham 0 - 3 Arsenal (15:30 á sunnudag)
Við höldum áfram að lifa í draumalandi Arteta og nálgumst titilinn hægt en örugglega. Sænska skrímslið hendir í þrennu.

Tottenham 1 - 2 Leeds (19:00 á mánudag)
Undir ljósunum og því miður fyrir Tottenham þá er þessi leikur á heimavelli þeirra. Leeds setja dramatískt sigurmark og Spurs og West Ham halda áfram í fallbaráttunni.

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Hallgrímur Mar (5 réttir)
Ívar Örn (5 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Gabríel Snær (4 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Óskar Borgþórs (3 réttir)
Jakob Gunnar (3 réttir)
Gunni Birgis (3 réttir)
Bolli Már (3 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Stefán Árni (2 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í ensku úrvalsdeildinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner