Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   fös 17. apríl 2026 13:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hallgrímur Mar spáir í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA.
Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Mar spáir því að City bursti Arsenal í stórleiknum.
Hallgrímur Mar spáir því að City bursti Arsenal í stórleiknum.
Mynd: EPA
Casemiro og Bruno.
Casemiro og Bruno.
Mynd: EPA
Everton tekur á móti Liverpool í nágrannaslag.
Everton tekur á móti Liverpool í nágrannaslag.
Mynd: EPA
Það er spennandi lokasprettur framundan í ensku úrvalsdeildinni. Stærsti leikur tímabilsins til þessa fer fram um helgina þegar Manchester City tekur á móti Arsenal.

Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA og einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar, spáir í leikina sem eru á dagskrá núna um helgina.

Brentford 2 - 1 Fulham (11:30 á morgun)
Þetta er leikur sem kallar á X. Bæði lið ekki frábær undanfarið. En ég hugsa að Fulham nái ekki að stoppa Brasilísku skeppnuna. Thiago setur bæði, einu betur en hann gerði gegn okkur KA árið 2023.

Leeds 1 - 1 Wolves (14:00 á morgun)
Lið sem eru bæði skíthrædd við að tapa þessum leik. Ég vona samt innilega að Leeds tapi þessum. Það eru margar ástæður fyrir því. Aggi frændi sem er Leedsari á það skilið eftir að hafa bombað á mig skilaboðum um leið og Martinez fékk rauða spjaldið í síðasta leik, óverðskuldað. Svo vona ég bara að ofbeldismaðurinn DCL tapi, ótrulegt að hann hafi klárað 90 mínútur á Old Trafford án þess að fá rautt spjald fyrir ofbeldi i 90 mínútur.

Newcastle 3 - 2 Bournemouth (14:00 á morgun)
Það er eitthvað sem segir mér að Newcastle kreisti sigur í þessum leik, þrátt fyrir að hafa verið ömurlegir undanfarið og á mjög skrítnum stað.

Tottenham 2 - 1 Brighton (16:30 á morgun)
Furðuleg tilfinning. En ég finn að fyrsti sigur Spurs í deild á þessu ári komi núna um helgina. Ég sé sigurmark á lokamínútunum.

Chelsea 1 - 3 Manchester United (19:00 á morgun)
Þetta er næst auðveldasti leikurinn að veðja á. Chelsea verða ekki góðir í þessum leik frekar en öðrum leikjum. Þægilegur dagur fyrir Carrick, sem gulltryggir Champions League á næsta ári. Besti miðjumaður heims leggur upp þrjú. Mbeumo kveikir á sér og setur tvö, Casemiro eitt.

Aston Villa 3 - 0 Sunderland (13:00 á sunnudag)
Villa menn að koma þægilegu Evrópu verkefni, náðu að hvíla nokkra, fullir sjálfstrausts. McGinn sem er á einhvern furðulegan hátt bara orðinn besti vinur Villa í Stevie Dagskrá, setur eitt með R1 í fjær.

Everton 1 - 1 Liverpool (13:00 á sunnudag)
Þetta fer sennilega X. Hef eiginlega ekkert meira um þennan leik að segja.

Nottingham Forest 1 - 0 Burnley (13:00 á sunnudag)
Ég er svo sem ekkert með count down eftir þessum leik. Setjum bara Forest sigur.

Man City 4 - 0 Arsenal (15:30 á sunnudag)
Cherki x Haaland fara þægilega i gegnum Arsenal.
Fótboltinn mun sigra þennan leik. Arsenal mun því miður ekki fá nógu mikið af hornspyrnum eða set pieces til að ógna marki City. Ásgeir Sigurgers vinur minn er stressaður og ekki minnkar það eftir þennan leik.

Crystal Palace 1 - 1 West Ham (19:00 á mánudag)
West Ham ná jafntefli. Palace þreyttir.

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Ívar Örn (5 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Jakob Gunnar (3 réttir)
Gunni Birgis (3 réttir)
Bolli Már (3 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Stefán Árni (2 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp