Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 10:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jakob Gunnar spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Jakob Gunnar Sigurðsson, leikmaður Lyngby í Danmörku.
Jakob Gunnar Sigurðsson, leikmaður Lyngby í Danmörku.
Mynd: Lyngby
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Mynd: EPA
Einn harðasti Gordon maður landsins.
Einn harðasti Gordon maður landsins.
Mynd: EPA
Jakob Gunnar spáir sigri Arsenal í úrslitaleik deildabikarsins.
Jakob Gunnar spáir sigri Arsenal í úrslitaleik deildabikarsins.
Mynd: EPA
Það er mjög svo áhugaverð helgi framundan í enska boltanum. Veislan byrjar í kvöld og klárast á sunnudaginn með úrslitaleik deildabikarsins þar sem tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar eigast við.

Jakob Gunnar Sigurðsson, sóknarmaður Lyngby í Danmörku, fékk það verkefni að spá í leikina. Jakob Gunnar spáir í einn leik í Championship og úrslitaleik deildabikarsins þar sem það eru bara átta leikir á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Championship
Ipswich 1 - 3 Millwall (12:30 á morgun)
Mínir menn í Millwall að eiga frábært tímabil og eru að koma mönnum á óvart. Þeir halda afram að skora eftir föst leikatriði. Ef menn hafa lítið að gera 12:30 á laugardegi verður þetta frábær skemmtun.

Enska úrvalsdeildin
Bournemouth 1 - 2 Man Utd (20:00 í kvöld)
United með góðan sigur gegn Villa, Bournemouth ekki skorað í síðustu tveimur. Skora þó núna en það dugir ekki til. Arnar Páll harðasti United maður landsins skemmtir sér vel.

Brighton 2 - 0 Liverpool (12:30 á morgun)
Kóngurinn Danny Welbeck hendir í tvö mörk og Arne Slot rekinn sirka korteri eftir leik, vonandi byrjar Frimpong á kantinum svo ég geti poppað popp og hlegið í 90 mínutur. Veikir vinir mínir eins og Aron Valur og Hrafn Guðmunds svo einhverjir séu nefndir munu svo væntanlega segja mér eftir leik að þeir vinni bara titilinn á næsta tímabili.

Fulham 1 - 1 Burnley (15:00 á morgun)
Fulham verða með sirka 7 í xG en Dubravka á stórleik í markinu, Burnley jafnar á 90+ og halda í vonina að koma sér upp úr fallsæti.

Everton 2 - 3 Chelsea (17:30 á morgun)
Liam Rosenior hendir í einhverja alvöru veislu, liðsfundur í miðjuhringnum með dómarann í hringnum! Maðurinnn er í 7D skák, þvílíkur kóngur. Er nýbúinn að kaupa Joao Pedro í Fantasy þannig hann skorar líklegast ekki. Beto eða Barry skora en bara annar hvor samt.

Leeds 0 - 1 Brentford (20:00 á morgun)
Kelleher fær svakalega magapest í upphitun og getur ekki spilað, Hákon í búrið, 10+ vörslur 0-0 eftir 95, bætt við sex mínútum, Brentford fær horn og Hákon inn í. Beint á pönnuna á Hákoni og getur ekki farið lengra upp í samúel.

Newcastle 1 - 0 Sunderland (12:00 á sunnudag)
Þetta verður leikur umferðarinnar, þrjú rauð spjöld, mikið af færum og late winner. Gæti séð Gordon skora, er einn harðasti Gordon maður landsins.

Aston Villa 2 - 0 West Ham (14:15 á sunnudag)
Aston Villa koma sér aðeins frammúr Liverpool með sigri, Harvey Elliott poppar upp og setur bæði bara til að strá salti í sárin hjá Liverpool mönnum.

Tottenham 0 - 5 Nottingham Forest (14:15 á sunnudag)
Tottenham alveg hrottalega lélegir. Ætli Tudorinn reyni ekki bara að tapa til að komast út úr þessu eitraða umhverfi þarna i Norður-Lundúnum?

Úrslitaleikur deildabikarsins
Arsenal 2 - 0 Man City (16:30 á sunnudag)
Stærsti leikur ársins hingað til. Bikar í boði og Arsenal eru bara í allt öðrum styrkleika en restin af liðunum í þessari deild. Gyökeres, betur þekktur sem Glock-14 eða sumir þekkja hann sem besta framherja ensku úrvalsdeildarinnar, setur bæði og hendir grímunni á sig. Sá fyrsti af fjórum hjá okkur Arsenal mönnum og annar af fimm hjá Eze.

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Ívar Örn (5 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Gunni Birgis (3 réttir)
Bolli Már (3 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner