Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   fim 10. janúar 2019 18:00
Arnar Helgi Magnússon
Jón Dagur: Mér líst mjög vel á Hamren
Icelandair
Jón Dagur á æfingu í Katar.
Jón Dagur á æfingu í Katar.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Jón Dagur Þorsteinsson leikmaður Vendsyssel í Danmörku er í íslenska landsliðshópnum sem að æfir í Katar þessa dagana og spilar æfingaleiki gegn Svíum og Eistum á næstu dögum.

„Ég er að fíla þetta í botn. Aðstæðurnar eru frábærarar og hitastigið er gott," sagði Jón Dagur aðspurður hvernig hann væri að fíla Katar.

„Menn eru aðeins þreyttir eftir langt ferðalag en flestir orðnir frískir núna. Við erum búnir að ná tveimur eða þremur góðum æfingum finnst mér."

Ísland og Svíþjóð mætast í æfingaleik annað kvöld í Katar. Leikurinn hefst 16:45 á íslenskum tíma.

„Við erum fyrst og fremst að hugsa um sjálfa okkur og reyna að bæta okkar leik. Við munum sennilega aðeins kíkja á Svíþjóð í kvöld síðan."

Vendsyssel, liðs Jóns Dags hefur verið í basli á leiktíðinni og situr í tólfta sæti af fjórtán liðum í dönsku úrvalsdeildinni.

„Við höfum verið að ströggla en síðan náðum við í einhverja sigra fyrir jólafrí. Seinni hlutinn verður bara 50/50. Það verður bara gaman að takast á við þetta verkefni."

„Við höfum verið að ströggla á móti liðum sem eru í kringum okkur en síðan að ná í stig á móti hinum liðunum. Ef við breytum því og förum að vinna líka liðin í kringum okkur þá eigum við flottan séns.

Viðtalið við Jón Dag má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner