Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. janúar 2020 22:41
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolta.net mótið: Þróttur V. skoraði fjögur gegn Haukum
Alexander Helgason (t.h.) skoraði þrennu og Örn Rúnar Magnússon sem er fyrir miðju gerði þriðja mark liðsins
Alexander Helgason (t.h.) skoraði þrennu og Örn Rúnar Magnússon sem er fyrir miðju gerði þriðja mark liðsins
Mynd: Þróttur V.
Haukar 1 - 4 Þróttur V.
1-0 Markaskorara vantar ('12 )
1-1 Alexander Helgason ('18 )
1-2 Alexander Helgason ('48 )
1-3 Örn Rúnar Magnússon
1-4 Alexander Helgason (Víti)

Þróttur V. vann góðan 4-1 sigur á Haukum í fyrsta leik liðanna í B-deild Fótbolta.net mótsins í kvöld.

Haukar komust yfir snemma leiks en Alexander Helgason jafnaði metin sex mínútum síðar.

Alexander var aftur á ferðinni á 48. mínútu. Haukar gátu komist inn í leikinn þegar um það bil tuttugu mínútur voru eftir er Þróttarar misstu mann af velli með rautt spjald en Þróttarar gáfu í og gerðu tvö mörk til viðbótar.

Örn Rúnar Magnússon gerði þriðja markið og svo fullkomnaði Alexander þrennu sínu undir lokin með marki úr víti. Lokatölur 4-1 og Þróttur V. með þrjú stig í riðli 2 en Haukar án stiga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner