Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 10. janúar 2020 20:03
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd í viðræðum við Sporting um Fernandes
Bruno Fernandes er sagður í viðræðum við Manchester United
Bruno Fernandes er sagður í viðræðum við Manchester United
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United er í viðræðum við Sporting Lisbon um kaup á Bruno Fernandes en portúgalski blaðamaðurinn Filipe Dias greinir frá þessu.

Fernandes, sem er 25 ára gamall, var afar eftirsóttur síðasta sumar en Tottenham og Manchester United sýndu honum mikinn áhuga.

Þrátt fyrir það ákvað hann að vera áfram og skrifaði hann undir nýjan samning við Sporting í nóvember.

Portúgalski blaðamaðurinn Filipe Dias greinir hins vegar frá því í kvöld að Manchester United sé í viðræðum við Sporting um kaup á Fernandes og að viðræðurnar séu komnar langt á veg.

Fjárhagsstaða Sporting er erfið og er það ástæðan fyrir því að félagið er tilbúið að ræða við Manchester United en Dias er ritstjóri O Jogo, sem er eitt virtasta blaðið í Portúgal.

Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur þegar greint frá því að hann vilji fá að minnsta kosti tvo leikmenn í þessum glugga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner