Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 10. desember 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Villarreal rekur þjálfarann - Bróðir hans spilaði á Íslandi
Javi Calleja.
Javi Calleja.
Mynd: Getty Images
Villarreal hefur ákveðið að reka þjálfarann Javi Calleja eftir einungis einn deildarsigur síðan í september.

Calleja tók við Villarreal í september í fyrra og kom liðinu í Evrópudeildina með því að enda í 5. sæti deildarinnar.

Á þessu tímabili hefur Villarreal verið í miklu basli en liðið er í 17. sæti, þremur stigum frá falli.

Þess má geta að yngri bróðir Javi, Fernando Calleja, var markahæstur hjá Huginn þegar liðið vann 2. deildina árið 2015.
Athugasemdir
banner
banner