Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   fös 11. janúar 2019 19:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óttar Magnús: Voru vonandi að fylgjast með þessu
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
„Við byrjuðum mjög vel og hefðum átt að vera komnir 2-3 mörkum yfir í byrjun fyrri hálfleiks," sagði Óttar Magnús Karlsson eftir 2-2 jafntefli gegn Svíþjóð í vináttulandsleik í Katar í dag.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  2 Svíþjóð

„Ég átti gott færi eftir mjög vel upplagt horn, við vorum búnir að æfa þetta á æfingasvæðinu. Það heppnaðist allt nema að setja hann inn. Það kemur næst."

„Þetta var skemmtilegt. Það eru flestir hérna ekki búnir að spila mikið saman og að koma úr fríi, en þetta var gaman."

Óttar kom Íslandi yfir snemma leiks. Þetta var hans annað landsliðsmark í sjötta landsleiknum. Það var sérstaklega skemmtilegt fyrir hann að skora gegn Svíþjóð, en hann leikur þar í landi. Óttar gekk á dögunum til liðs við Mjallby í sænsku B-deildinni eftir að hafa verið í láni hjá Trelleborg frá Molde á síðasta tímabili.

„Mjög fínt. Ég er búinn að vera þarna í eitt tímabil. Þeir voru vonandi að fylgjast með hjá liðinu þar sem ég var í Svíþjóð."

„Ég smellhitti hann beint á ristina. Það var gaman að sjá hann inni," sagði Óttar.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner