Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 11. janúar 2020 17:14
Aksentije Milisic
Mata: Eigum að spila svona oftar
Mata lagði upp tvö og Greenwood skoraði eitt.
Mata lagði upp tvö og Greenwood skoraði eitt.
Mynd: Getty Images
Juan Mata, leikmaður Manchester United, var ánægður með spilamennsku liðsins í 4-0 sigrinum á Norwich í dag.

Spánverjinn fékk tækifæri í byrjunarliðinu og stóð hann sig með prýði og lagði upp tvö fallegt mark þar sem hann átti góðar fyrirgjafir sem Marcus Rashford og Anthony Martial sáu um að koma í netið.

„Þetta var mjög góð frammistaða hjá okkur í dag. Mjög gott svar eftir síðasta tapleik. Við fundum mikið svæði á vellinum og nutum þess að spila, frábær spilamennska," sagði hinn reynslumikli Mata.

„Frammistaðan í dag er mjög gott dæmi um hvernig við eigum að spila miklu oftar. Það eru nokkur lið að berjast um sæti í meistaradeildinni. Chelsea eiga eftir að vinna sína leiki svo við verðum að halda meiri stöðugleika."

Næsti deildarleikur United er á Anfield gegn toppliði Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner