Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. mars 2020 15:09
Elvar Geir Magnússon
Mbappe ekki með kórónaveiruna - Er í hóp í kvöld
Mynd: Getty Images
Það hefur verið staðfest að Kylian Mbappe, sóknarmaður Paris St-Germain, er ekki með kórónaveiruna.

Mbappe var skoðaður eftir að hann fékk hálsbólgu og hita. Óttast var að hann væri mögulega kominn með kórónaveiruna en svo reyndist ekki vera.

PSG mætir Dortmund í seinni viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en leikið verður fyrir luktum dyrum vegna útbreiðslu veirunnar.

PSG vonast til að Mbappe spili leikinn en franska liðið þarf svo sannarlega á hans kröftum að halda til að snúa við 2-1 tapi úr fyrri leiknum.

Uppfært: Mbappe er í leikmannahópnum.

Athugasemdir
banner
banner
banner