Brasilíumaðurinn David Neres var á skotskónum fyrir Ajax í 1-1 jafnteflinu gegn Juventus í Meistaradeildinni í gær.
Þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitunum og fór hann fram í Amsterdam í Hollandi.
Þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitunum og fór hann fram í Amsterdam í Hollandi.
Cristiano Ronaldo hafði komið Juventus yfir undir lok fyrri hálfleiks, en Ajax byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og jafnaði þegar aðeins 30 sekúndur voru liðnar af honum.
Það var Neres sem skoraði markið með laglegu skoti eftir góðan sprett upp völlinn.
Mörkin úr leiknum má sjá hérna.
Ajax spilaði vel í gærkvöldi og verður liðið eflaust vel gírað í seinni leiknum á Ítalíu í næstu viku.
Athugasemdir