Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. september 2021 14:45
Elvar Geir Magnússon
Þorvaldur dæmir stórleikinn í Kópavogi
Þorvaldur Árnason.
Þorvaldur Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru fimm leikir í Pepsi Max-deildinni í dag en í kvöld klukkan 20:00 verður stórleikur Breiðabliks og Vals á dagskrá.

Þorvaldur Árnason verður dómari í þeim leik og aðstoðardómarar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Ragnar Þór Bender. Ívar Orri Kristjánsson er varadómari.

Víkingur, sem er í öðru sæti, mætir HK klukkan 17:00. Jóhann Ingi Jónsson dæmir þann leik.

Þrír leikir eru á dagskrá í þessum skrifuðu orðum. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik ÍA og Leiknis, Helgi Mikael Jónasson leik KA og Fylkis og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmir leik Keflavíkur og KR.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner