Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 12. janúar 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía í dag - Bikarhelgi
Halda Juventus áfram að fagna?
Halda Juventus áfram að fagna?
Mynd: Getty Images
Um helgina fara fram sextán liða úrslit í ítölsku bikarkeppninni, Coppa Italia.

Í dag fara fram þrír leikir.

Lazio, sem er í fjórða sæti Seria A, tekur á móti Novara í fyrsta leik dagsins. Novara er sem stendur í tíunda sæti A-riðils í Seria C, þriðju efstu deildar.

Sampdoria fær AC Milan í heimsókn, bæði lið eru í hörku Evrópu baráttu í deildinni. AC Milan komst í úrslit í keppninni í fyrra og vill eflaust komast þangað aftur í ár.

Að lokum sækir topplið Seria A og núverandi bikarmeistarar, Juventus fallbaráttulið Bologna heim.

Laugardagur:
14:00 Lazio - Novara
17:00 Sampdoria - AC Milan
19:45 Bologna - Juventus
Athugasemdir
banner
banner