Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 12. mars 2021 11:30
Elvar Geir Magnússon
Bakslag hjá Silva
Thiago Silva.
Thiago Silva.
Mynd: Getty Images
Chelsea heimsækir Leeds í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að varnarmaðurinn reynslumikli Thiago Silva hefði orðið fyrir bakslagi á æfingu.

Silva hefur verið að glíma við meiðsli í læri en var mættur á varamannabekkinn í leiknum gegn Chelsea í vikunni.

Hann fann hinsvegar aftur fyrir meiðslunum a æfingu á miðvikudaginn og verður ekki með í leiknum á morgun.

Þá er sóknarmaðurinn Tammy Abraham enn á meiðslalistanum vegna ökklameiðsla. Það er stutt í að hann verði klár en hann er þó ekki orðinn 100%.
Athugasemdir
banner
banner
banner