Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. júní 2022 15:58
Elvar Geir Magnússon
Eignaðist barn á hárréttu augnabliki
Hörður Björgvin Magnússon.
Hörður Björgvin Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon og Móeiður Lár­us­dótt­ir eignuðust sína aðra dóttur á fimmtudaginn.

Arnar Þór Viðarsson var hæstánægður með tímasetninguna á fæðingunni í miðjum glugga. Hörður var ekki með gegn San Marínó en verður með gegn Ísrael á morgun.

„Við vissum þetta með Hödda fyrir þennan glugga. Konan hans var komin á steypirinn og gerði þetta af mikilli snilld og á hárréttu augnabliki, á réttum degi," sagði Arnar á fréttamannafundi í dag.

„Eftir því sem maður heyrir gerði hún þetta eins og sannur meistari og það er lítil stúlka sem er komin í heiminn. Það er frábært og Hörður hefur æft með okkur síðan við komum heim."

Fótbolti.net óskar Herði og Móeiði til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn.


Upptaka - Horfðu á fréttamannafund Arnars og Birkis
Athugasemdir
banner
banner