Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 12. september 2020 06:00
Aksentije Milisic
Þýski bikarinn: C-deildar lið sló út Herthu í 9 marka leik
Mynd: Getty Images
Braunschweig 5 - 4 Hertha
1-0 Martin Kobylanski ('2 )
2-0 Maximilian Mittelstadt ('17 , sjálfsmark)
2-1 Dodi Lukebakio ('23 )
2-2 Matheus Cunha ('29 )
2-2 Martin Kobylanski ('44 , Misnotað víti)
3-2 Martin Kobylanski ('44 )
3-3 Peter Pekarik ('65 )
4-3 Martin Kobylanski ('66 )
5-3 Suleiman Abdullahi ('73 )
5-4 Dodi Lukebakio ('83 )

Mjög óvænt úrslit urðu í þýska bikarnum í gær þegar Braunschweig og Hertha Berlin áttust við í 64-liða úrslitum.

Flestir bjuggust við því að Hertha myndi vinnan þennan leik nokkuð örugglega enda að spila gegn C-deildarliði en svo varð ekki.

Martin Kobylanski gerði þrennu fyrir heimamenn en hann komi liðinu yfir á annari mínútu. Staðan var 3-2 fyrir Braunschweig í hálfleik.

Hertha jafnaði í 3-3 en í kjölfarið skoruðu heimamenn tvö mörk á sjö mínútna kafla. Dodi Lukebakio minnkaði muninn fyrir Herthu en það var ekki nóg og því mjög óvænt úrslit staðreynd í þessum mikla markaleik.


Athugasemdir
banner