Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 12. nóvember 2021 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Xavi sektar Dembele fyrir brot á reglum
Mynd: EPA
Xavi nýráðinn stjóri Barcelona hefur sett margar reglur fyrir leikmenn liðsins síðan hann tók við.

Fyrsta reglan er að allir leikmenn þurfi að vera mættir einum og hálfum tíma fyrir æfingu.https://fotbolti.net/news/09-11-2021/reglurnar-sem-xavi-kynnti-fyrir-leikmonnum-fyrir-fyrstu-aefingu

Xavi hefur sagt að það sé forgangsatriði fyrir félagið að semja við Ousmane Dembele en hann hefur verið mikið á meiðslalistanum að undanförnu.

Dembele er sá fyrsti til að brjóta reglurnar sem Xavi setti en hann mætti heilum þremur mínútum of seint á æfingu og fékk sekt fyrir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner