Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 13. janúar 2023 20:34
Ívan Guðjón Baldursson
Tveir farnir útaf vegna meiðsla - Moreno og Ings inn
Mynd: Aston Villa

Aston Villa er þessa stundina 1-0 yfir gegn Leeds United í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.


Aston Villa tók forystuna á þriðju mínútu þegar Leon Bailey skoraði en vandræðin byrjuðu skömmu síðar.

Franski bakvörðurinn Lucas Digne þurfti þá að fara meiddur af velli en inn í hans stað kom Alex Moreno, sem var staðfestur sem nýr leikmaður Villa í fyrradag.

Það gerðist svo á 31. mínútu að Ollie Watkins þurfti að fara meiddur af velli og er Danny Ings kominn inn í hans stað.

Það verður áhugavert að fylgjast með Moreno í leiknum og einnig að sjá hvernig Unai Emery, knattspyrnustjóri Villa, nálgast skiptingarnar í síðari hálfleik. Hann á þrjár skiptingar eftir en aðeins eitt skipti til að nýta þær.


Athugasemdir
banner
banner
banner