Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. mars 2019 09:00
Arnar Helgi Magnússon
Alfreð byrjaður að æfa - Verður hann í landsliðshópnum?
Icelandair
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason er byrjaður að æfa aftur með Augsburg en hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur.

Alfreð meiddist í leik í þýsku úrvalsdeildinni gegn Werder Bremen 10. febrúar síðastliðinn.

Augsburg á leik gegn Hannover 96 á laugardag en það þykir þó tæpt að Alfreð byrji þannn leik.

Erik Hamren, landsliðsþjálfari Íslands, velur landsliðshópinn sem að mætir Andorra og Frakklandi á morgun.

„Þetta verður tæpt ef ég á að vera alveg hreinskilinn með það. Við lítum hinsvegar jákvætt á þetta og við vitum hvernig ferlið er hjá honum upp á að ná landsleikjunum og við vonumst til að það gangi eftir," sagði Freyr Alexandersson í samtali við Fótbolta.net fyrr í mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner