Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. mars 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn í dag - Madrídarliðin í eldlínunni
Mynd: Getty Images
Fjórir leikir fara fram í spænska boltanum í dag en Atlético og Real Madrid eru í eldlínunni.

Real Madrid spilar við Elche á Alfredo Di Stefano-vellinum. Real Madrid er átta stigum á eftir toppliði Atlético og því ekkert annað en sigur í boði hjá lærisveinum Zinedine Zidane.

Atlético fer á meðan í heimsókn til Getafe en Atlético getur styrkt stöðu sína á toppnum og náð níu stiga forystu á Barcelona sem er í öðru sæti.

Leikir dagsins:
13:00 Alaves - Cadiz
15:15 Real Madrid - Elche
17:30 Osasuna - Valladolid
20:00 Getafe - Atletico Madrid
Athugasemdir
banner
banner