Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 13. júní 2018 21:56
Matthías Freyr Matthíasson
Helgi Sig: Við vorum bara betri út á vellinum
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Mjög svekkjandi tap. Mér fannst við ofan á hérna langtímum saman, allavega fyrstu 60 - 65 mínúturnar þangað til þeir skoruðu. Þá vorum við aggressífir og stigum hátt upp á þá og gáfum þeim engan tíma á boltann og vorum að skpa okkur mikið af færum og mikið af hornspyrnum. Vorum með 18 - 20 hornspyrnur og fúlt að fá ekkert út úr þessu," sagði svekktur Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkis eftir tap gegn Breiðablik í kvöld.

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 -  0 Fylkir

„Auðvitað verður maður frústreraður í hita leiksins en það þýðir ekkert. Maður væri meira svekktur ef við værum ekki að skapa nein færi en við erum að fá mikið af færum í leikjum og nú er bara að nýta tímann vel til að slípa það eins en ég hef ekkert út á spilamennskuna að setja. Eins og ég segi, maður getur alltaf klúðrað færum en meðan við erum að komast í þau og erum svona aggresífir eins og við erum að þá hef ég ekki neinar áhyggjur af liðinu.

Við erum búnir að vera að spila í þessari níu leikja törn og þar af einungis þrjá heimaleiki, sex úti og við erum búnir að vinna alla heimaleikjana þannig að við erum í bara tiltölulega góðum málum.

Þeir fengu engann tíma á boltann og eins ég segi, við vorum bara betri úti á vellinum sem er kannski oft sem það gerist fyrir Blikana hérna á eigin heimavelli en við vorum bara mjög öflugir. Það eina sem vantaði í þennan leik var að við skoruðum markið á undan. Því miður gerðist það ekki og því fór sem fór."


Nánar er rætt við Helga Sigurðsson í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner