Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. ágúst 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Adil Rami rekinn frá Marseille - Meiddur í raunveruleikasjónvarpi
Adil Rami.
Adil Rami.
Mynd: Getty Images
Franska félagið Marseille hefur ákveðið að rifta samningi við varnarmanninn Adil Rami.

Rami var fyrr í sumar settur í bann hjá Marseille eftir að hann mætti ekki til æfinga hjá félaginu.

Rami sagðist vera meiddur en hann gerði síðan forráðamenn félagsins brjálaða þegar hann mætti í leðjuslag í raunveruleikasjónvarpi í Frakklandi.

Forráðamenn Marseille voru ósáttir við að sjá Rami í raunveruleikasjónvarpinu þegar hann sagðist vera meiddur og niðurstaðan var sú að hann var rekinn frá félaginu.

Hinn 33 ára gamli Rami hefur átt erfitt í einkalífinu undanfarna mánuði eftir að Pamela Anderson hætti með honum en samband þeirra hafði vakið mikla athygli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner