Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 13. október 2014 19:33
Fótbolti.net
Twitter í hálfleik - Gylfa sem forseta
Icelandair
Gylfi skorar fyrra mark sitt.
Gylfi skorar fyrra mark sitt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cillesen átti ekki séns í markinu.
Cillesen átti ekki séns í markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason fær vítaspyrnuna.
Birkir Bjarnason fær vítaspyrnuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland er 2-0 yfir gegn Hollendingum í hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað bæði mörk Íslands. Hér er brot af umræðunni á Twitter í fyrri hálfleiknum. Endilega merkið færslur ykkar #fotboltinet á Twitter!



Atli Freyr Ottesen
Lool erum að fara til Amsterdam i nótt , ég verð fullkit íslenskur wanker !!!

Rúnar Már Sigurjónsson
WE'RE HAVING A LAUGH #TheSig

Hólmar Eyjólfsson
Þessi gaur!!! Djöfull er Ísland að spila vel!

Jóhann Skagfjörð
Einhver að stofna Facebookhópinn "Gylfa sem forseta 2024" núna strax #thesig #fotbolti #fotboltinet

Agnar Þór Hilmarsson
Og ökklin á the Sig ætlaði bara að vera meiddur? #fotboltinet #gylfi

Viktor Unnar Illugason
Se ekki afhverju island ætti að hætta þessum 3-0 urslitum nuna

Birkir Björnsson
Pæliði í þessu landsliði ef Eiður Smári væri 10 árum yngri!! #islhol #fotboltinet #shit #hmogem

Guðmundur Þórarinsson
Skipta út A-liðinu núna og henda okkur í u21 inn á! #parkthebus

Daníel Rúnarsson
Stórþjóð í heimsókn á Laugardalsvelli. Í gamla daga snérist það um að ná sér í góða treyju. Núna mæta menn bara með kassann úti.

Magnús Már Einarsson
Aumingja Cillesen. Boltarnir ömurlegir. Eitt skot. Eitt mark á sig. Hefði átt að kvarta aðeins meira

Hrafnhildur Agnarsdóttir
Hahahahaha hvað er að gerast?

Albert Gudmundsson
Shit hvað það verður gaman á æfingu á morgun!!!!

Halldór Marteinsson
Karlalandsliðið er alveg að fá mann til að bölva þessum landsleikjahléum töluvert minna. #áframÍsland #ISLHOL #fotboltinet

Kristjan Mar Ólafs
Bara einn staður í heiminum sem ég væri til í að vera á núna og það er Laugardalsvöllur #stemning #islhol #fotboltinet

Sigurður Svavarsson
Alltaf gaman þegar menn koma upp um sjónvarpsgláp sitt í kennslutíma međ því ađ fagna marki. #fotboltinet #áframísland

Elvar Geir Magnússon
Emil er að byrja þennan leik sturlað vel. #fotboltinet

Hörður Snævar Jónsson
Frammistaða Emils fyrstu 20 minnir mann á Gylfa gegn Tyrkjum #Gæði

Ruth Þórðar
Ein heima að horfa á leikinn í landsliðstreyju #nörd

Henry Birgir Gunnarsson
Svekkjandi að Steve Coppell hafi ekki tekið við landsliðinu.

Halldor Bogason
💍 MARRY ME GYLFI

Elfar Freyr Helgason
Átti ekki von á því að Ísland yrði gott í fótbolta á meðan ég lifði. Þetta lið er alvöru

Hilmar Hilmarsson
Það sem álit mitt á Emil Hallfreðs er búið að fara upp, búinn að byrja þennan leik hrikalega vel #fotbolti

Sigurđur Gìsli
Cillesen var ALDREI að fara verja frá G.Sig, lélegasti vítabani allra tíma fact

Hrannar Már Gunnarsson
Hahaha, Van Gaal hefði bara smellt Krul inn á.

Sigurður Elvar Þórólfsson
Jói vallarstjóri þarf að skúra völlinn í hálfleik - þessi froða er ekkert að gufa upp í +2 gráðum. #fotboltinet #fotbolti

Tómas Þór Þórðarson
Þegar Rikka er byrjuð að pósta myndum af vellinum af Gylfa að skora þá eru ALLIR með. #RikkuPics

Einar Guðnason
Robben er í hvítum sokkabuxum. Sparkið í hann

Bragi Valdimar
Hvenær ætlar íslenska landsliðið að drulludrattast til að setja nöfnin sín á treyjurnar, en ekki niðurstöður faðernisprófs? #fotbolti
Athugasemdir
banner
banner