Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. nóvember 2021 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Havertz klár í slaginn gegn Armeníu
Mynd: EPA
Kai Havertz leikmaður Chelsea og þýska landsliðsins hefur verið að kljást við meiðsli að undanförnu og ekkert getað æft með landsliðinu.

Þar af leiðandi gat hann ekki tekið þátt í stórsigri Þýskalands gegn Liechtenstein þar sem þjóðverjar kjöldrógu þá 9-0.

Hann er hinsvegar mættur aftur til æfinga og verður klár í leikinn gegn Armeníu á morgun segir Hansi Flick stjóri Þýskalands.

Þetta er einnig mikill léttir fyrir Chelsea þar sem liðið er í meiðslavandræðum. Þeir Lukaku og Werner eru báðir tæpir fyrir leikinn gegn Leicester en þeir hafa misst af síðustu leikjum Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner