Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. nóvember 2021 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vill fara eftir fá tækifæri hjá Arsenal
Mynd: Getty Images
Folarin Balogun leikmaður Arsenal vill fara frá félaginu en þessi tvítugi framherji hefur farið á kostum fyrir varalið félagsins.

Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir u21 landslið Englands á fimmtudaginn í 3-1 sigri á Tékklandi. Hann hefur skorað 11 mörk í 10 leikjum fyrir varalið Arsenal.

Hann hefur hinsvegar aðeins fengið tækifæri í tveimur leikjum fyrir aðalliðið en honum finnst vera kominn tími á nýja áskorun.

„Ég hef skorað mörg mörk í unglingaflokki og bætt mig mjög mikið síðan ég byrjaði. Mér finnst ég tilbúinn fyrir nýja áskorun en ekki viss hver hún er, hvort það sé á láni eða hjá Arsenal, ég er til staðar og þjálfarinn veit það,"
Athugasemdir
banner
banner