Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mið 14. júlí 2021 09:05
Ívan Guðjón Baldursson
Ben White í forgangi hjá Arsenal
Mynd: Getty Images
Fréttamaðurinn virti Fabrizio Romano greinir frá því að Ben White, miðvörður Brighton, sé í forgangi hjá Arsenal þessa stundina.

Arsenal hefur náð samkomulagi við leikmanninn en á eftir að klára samningsviðræður við Brighton, sem er talið vilja 60 milljónir punda fyrir varnarmanninn.

Romano greinir frá því að franski miðvörðurinn William Saliba sé búinn að skrifa undir eins árs lánssamning við Marseille en hann fékk ekki mörg tækifæri undir stjórn Arteta á síðustu leiktíð og var ósáttur með það.

Þá er Arsenal að ganga frá kaupum á miðjumanninum Albert Lokonga, sem hefur verið að spila undir stjórn Vincent Kompany hjá Anderlecht.
Athugasemdir
banner
banner