Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 14. júlí 2021 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Roma vill fá Telles frá Man Utd
Mynd: EPA
Roma er í viðræðum við Manchester United um að fá Alex Telles í sínar raðir.

Þetta herma heimildid Sky á Ítalíu. Telles er 28 vinstri bakvörður sem gekk í raðir Man Utd frá Porto í október í fyrra.

Brasilíumaðurinn lék 24 leiki með United í fyrra, flesta af þeim í Evrópukeppnunum.

Roma er í leit að bakverði þar sem Leonardo Spinazzola meiddist á dögunum og verður frá næstu mánuði.

Roma er sagt vilja fá Telles á láni út tímabilið en United hefur lítinn áhuga á því að lána hann að svo stöddu.
Athugasemdir
banner
banner
banner