Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 15. janúar 2023 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Enginn heitari en Rashford
Marcus Rashford
Marcus Rashford
Mynd: EPA
Marcus Rashford er sjóðandi heitur þessa stundina og er enginn framherji heitari en hann í augnablikinu.

Englendingurinn skoraði sigurmark Manchester United í grannaslagnum gegn Manchester City á Old Trafford í gær en hann var að skora í sjöunda keppnisleiknum í röð.

Erling Braut Haaland er vissulega kominn með 21 mark í ensku úrvalsdeildinni en Rashford er í gírnum þessa stundina og getur ekki hætt að skora.

Rashford er hvað hrifnastur af sigurmörkum en 27 af 67 mörkum hans í úrvalsdeildinni hafa reynst sigurmörk. Enginn leikmaður, sem hefur skorað 50 mörk eða meira í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, er með hærra hlutfall en hann eða 40,1 prósent.

Hann er þá fyrsti leikmaðurinn til að skora í sjö leikjum í röð fyrir Manchester United síðan Cristiano Ronaldo gerði það í apríl fyrir fimmtán árum síðan.

Rashford er með 8 mörk í 18 leikjum í úrvalsdeildinni og sextán mörk í heildina á keppnistímabilinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner