Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 15. mars 2021 06:00
Aksentije Milisic
Dyche segir að Ben Mee eigi skilið landsliðssæti
Mynd: Getty Images
Sean Dyche, stjóri Burnley, segir að fyrirliði sinn, Ben Mee, eigi skilið landsliðssæti hjá Englandi.

Mee er algjör lykilmaður í vörn Burnley en hann hefur staðið sig vel hjá félaginu í gegnum árin. Það er ekki mikið rætt og ritað um þennan leikmann en hann er hinn fullkomni leikmaður í leikstíl Burnley.

Dyche segir að hann sé mjög vanmetinn leikmaður og að hann minnir sig á Steve Bruce í gamla daga.

„Ég held að það voru ekki margir enskir landsliðsmenn hér áður en ég kom. Mee er frábær varnarmaður og það er alltaf litið framhjá honum," sagði Dyche.

„Hann minnir mig á Bruce. Bruce var frábær miðvörður sem lék aldrei fyrir England. Mee hefur átt skilið að vera einhverntímann í leikmannahópnum allavega. En svona er þetta."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner