Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. mars 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Daley Blind framlengir við Ajax
Mynd: Getty Images
Hollenski varnarmaðurinn Daley Blind er búinn að framlengja samning sinn við Ajax um eitt ár, eða út júní 2023.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir stuðningsmenn Ajax sem voru smeykir um að missa lykilmann frá sér.

Blind hóf ferilinn hjá Ajax en skipti svo yfir til Manchester United þar sem hann spilaði í fjögur ár áður en hann hélt aftur heim til Ajax á frjálsri sölu.

Blind hræddi stuðningsmenn Ajax og aðra knattspyrnuunnendur þegar hann missti af leikjarunu vegna hjartsláttartruflana á upphafi síðasta árs.

Varnarmaðurinn, sem er nýbúinn að eiga sinn 31. afmælisdag, virðist þó vera búinn að ná sér og hefur hann verið að spila afar vel að undanförnu. Ajax trónir á toppi hollensku deildarinnar með átta stiga forystu og leik til góða.
Athugasemdir
banner