Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. júlí 2021 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grealish leyfir stuðningsmönnum Aston Villa að dreyma
Jack Grealish.
Jack Grealish.
Mynd: Getty Images
Það er auðvitað mikill áhugi á Jack Grealish, sem var einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.

Grealish var frábær fyrir Aston Villa á síðasta tímabili og stóð sig vel með enska landsliðinu á EM í sumar, þó mínúturnar hafi verið af skornum skammti.

Á meðan EM var í gangi var talað um það að Manchester City myndi gera Grealish að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans.

Núna hefur Grealish gefið stuðningsmönnum Aston Villa von um að hann muni halda tryggði við félagið.

Villa var að kynna nýjan búning sinn og þar var Grealish áberandi. Það gefur stuðningsmönnum félagsins von um að hann muni klæðast búningnum í ensku úrvalsdeildinni þegar næsta tímabil gengur í garð.


Athugasemdir
banner