Ari Freyr Skúlason skoraði frábært mark fyrir Lokoren í lokaumferð belgísku úrvalsdeildarinnar í dag.
Mótherjinn var Cercle Brugge en leiknum lauk með 3-1 sigri Lokoren. Liðsmenn Lokoren léku á alls oddi í byrjun leiks en staðan var orðin 2-0 eftir rúmlega hálftíma leik.
Ari Freyr skoraði þriðja mark Lokoren 39. mínútu með þrumufleyg fyrir utan teig.
Serge Gakpe minnkaði muninn fyrir Cercle í síðari hálfleik en lengra komst liði ekki. Lokatölur 3-1, Lokoren í vil.
Eins og fyrr segir var þetta síðasta umferð deildarinnar en Lokoren endaði í neðsta sæti og er þar með fallið niður í næst efstu deild.
Ekki er víst hvort að Ari Freyr verði áfram hjá liðinu en næsta verkefni hans er með Íslandi í tveimur leikjum gegn Andorra og Frakklandi.
Athugasemdir